Freisting.is fékk boð um að koma á Hótel Sögu, Grillið, tilefnið var að Akademian og Þráinn Freyr Vigfússon, næsti keppandi fyrir Íslands hönd, voru að kynna sig og fiskrétt Þráins í leiðinni.


Margt var um manninn, helstu birgjar sem veita verkefninu stuðning auk blaðamanna.


Friðrik Sigurðsson stiklaði á stóru um sögu keppninnar og umfang en eins og þeir sem til þekkja þá er verkefnið og sýningin í kringum keppnina risavaxinn (SHIRA).


Þráinn Freyr hefur sér til aðstoðar tvo nema í matreiðslu þá Atla Þór Erlendsson og Tómas Inga Jórunnarson en auk þess einn matreiðslumann, Bjarna Siguróla Jakobsson.  Tveir þeirra fara út í keppnina með Þránni.  Auk þeirra fer auðvitað Hákon Már Örvarsson, þjálfari og Sturla Birgisson sem er dómari.


Undankeppnin er í Sviss 5. til 7. júní næstkomandi.  Aðalhráefnið er kálfakjöt og lúða.
Þema Þráins er hraun og eldgos sem einkennir fiskréttinn og íslenskt birki fyrir kjötréttinn.


Þangað til undankeppnin byrjar hvílir mikil leynd yfir réttum og útliti rétta og var það skýrt tekið fram að myndir af réttinum mættu ekki fara á vefinn, þannig að Freisting.is hefur ákveðið að verða við því og hyljum við því matinn á diskunum.



Eina mynd af diski sem ekki er hulinn er diskur undirritaðs eftir að hafa sporðrennt góðgætinu sem var augljóslega útpælt og mjög gott á bragð og ekki spillti útlit matarins og framsetning fyrir, Þráinn er á réttri leið !


Fjölmargar myndir frá kynningunni hér
/ Bocuse / Bocuse – Europe 2010


Texti og myndir Matthías