Eins og sannir mataráhugamenn og auðvitað atvinnumenn í faginu vita að þá er Bocuse d’Or keppnin innan seilingar. En eins og alþjóð veit verður keppnin haldin í Lyon, Frakklandi dagana 29. og 30. janúar næstkomandi sem eru samkvæmt almannaki þriðjudagur og miðvikudagur.
Matarsýningin stóra byrjar þó á laugardeginum 26. janúar 2013
Að þessu sinni verða ekki skipulagðar neinar sérstakar pakkaferðir, eins og áður hefur verið gert, heldur eru flestir fullfærir um að panta sér flugfar og hótegistingu á netinu. Margir hafa verið að spá í þetta og eru flestir að velta fyrir sér ferðatímabilinu 27.01´13 sem er sunnudagur, til 01.02´13 sem er föstudagur.
Við brýnum fyrir fólki að huga tímanlega að flugi og hótelgistingu!
Akademían mun skipuleggja einhverjar samkomur úti í Lyon í kringum keppnisdagana, sameigilega farið út að borða og að skoða markverða staði.
Við hvetjum alla sem áhuga hafa á að skella sér út að hafa samband við okkur í Akademíunni ef einhverjar spurningar kunna að vakna.
Tenglar eru:
Björgvin Mýrdal S: 6153200, Friðrik Sigurðsson S: 8988289 auk
Bjarna Snæðings S: 8224110
En auðvitað má líka ná á aðra meðlimi svo sem Sturla Birgiss, Friðgeir, Þráinn, Jakob, Eirík Inga og Ragnar Ómarss.
Við búumst við að mikill fjöldi fólks muni bregða undir sig betri fætinum í janúar til að styðja okkar mann, Sigurður Kristinn Laufdal Haraldsson, sérstaklega eftir gott gengi hans í forkeppninni í mars síðastliðin í Brussel, Belgíu (4. sæti).
Official Social Media Bocuse d’Or