Bocuse dOr er allra virtasta matreiðslukeppni sem haldin er í heiminum og verið haldin síðan 1987 og komast færri þjóðir að enn vilja, en 24 þjóðir fá keppnisrétt eftir að hafa sigrað forkeppni úr sinni heimsálfu. Fimm efstu sætin í sjálfri Bocuse dOr keppninni tryggja þeim þjóðum sjálfkrafa keppnisrétt í næstu keppni. Bocuse dOr er oft kölluð hin eina sanna heimsmeistarakeppni í matreiðslu.
Íslendingar hafa verið með í síðustu fimm skipti eða frá 1999 og er árangur þeirra vægast sagt glæsilegur og sýnir tölfræðin að Íslendingar eru í hópi 6 bestu þjóða í heiminum í matreiðslu og er óhætt að krefjast árangurs í komandi keppnum.
Sá sem keppir fyrir Íslands hönd í janúar 2013 er Sigurður Kristinn Laufdal Haraldsson, en hann starfar sem matreiðslumaður á Vox, Hilton. Sigurður hreppti titilinn Matreiðslumaður ársins 2011, en hann náði vægast sagt glæsilegum árangri í forkeppninni sem haldin var í Horeca höllinni í Brussel fyrr á þessu ári.
Hægt verður að fylgjast með því sem Sigurður Kristinn er að gera á facebook síðu Íslensku Bocuse d´Or akademíunnar.
Official Social Media Bocuse d’Or