Bocuse d´Or Akademía Íslands hefur valið keppanda og mun Sigurður Helgason á Grillinu keppa fyrir Íslands hönd í Bocuse d´Or Europe í maí 2014 í Stokkhólm.  Bocuse d´Or Europe er forkeppni fyrir aðalkeppnina sem haldin verður í Lyon í janúar 2015.

Sigurður Helgason er yfirmatreiðslumaður Grillsins en hann hann hóf feril sinn á veitingahúsinu Perlunni árið 1998.  Hann var valinn matreiðslunemi ársins árið 1999 og útskrifaðist með hæstu einkunn árið 2001.  Á árunum 1999 – 2001 starfaði Sigurður hjá Forseta embætti Íslands við veislu undirbúning undir sterkri leiðsögn Sturlu Birgissonar.  Að loknu námi hélt Sigurður til Lúxemborgar þar sem hann starfaði á Resturant Lea Linster´s í 6 mánuði en sá veitingastaður skartar einni Michelin stjörnu.

Árið 2004 tók Sigurður við sem yfir matreiðslumaður á Skólabrú og starfaði þar til ársins 2006.  Á árunum 2006 – 2010 fór Sigurður erlendis þar sem hann starfaði sem einkakokkur á Englandi, Írlandi og New York við góðan orðstír.  Árið 2010 snéri Sigurður aftur til starfa á Grillinu og árið 2011 tók hann við sem yfirmatreiðslumaður Grillsins.

Á undanförnum árum hefur Sigurður ferðast mikið til að skoða leiðandi veitingastaði og mótað þann matarstíl sem hann leggur upp með í matargerð sinni í dag. Hann hefur meðal annars heimsótt Capital Restaurant London, Foliage, Tom Aikens restaurant og La Noisette.

Árið 2004 – 2006 starfaði Sigurður með Íslenska kokkalandsliðinu, þar sem það vann til verðlauna á Ólympíuleikunum í Þýskalandi í Scot Hot í Glasgow og Basel í Swiss.

Það má með sanni segja að Sigurður er verðugur fulltrúi okkar íslendinga í hinni heimsfrægu Bocuse d´Or keppni.