Afrek
Sigurður Helgason er yfirmatreiðslumaður Grillsins, hann hóf feril sinn á veitingahúsinu Perlunni árið 1998. Hann var valinn matreiðslunemi ársins árið 1999 og útskrifaðist með hæstu einkunn árið 2001. Á árunum 1999 – 2001 starfaði Sigurður hjá Forseta embætti Íslands við veislu undirbúning undir sterkri leiðsögn Sturlu Birgissonar.
Að loknu námi hélt Sigurður til Lúxemborgar þar sem hann starfaði á Resturant Lea Linster´s í 6 mánuði en sá veitingastaður skartar einni Michelin stjörnu. Árið 2004 tók Sigurður við sem yfir matreiðslumaður á Skólabrú og starfaði þar til ársins 2006. Á árunum 2006 – 2010 fór Sigurður erlendis þar sem hann starfaði sem einkakokkur á Englandi, Írlandi og New York við góðan orðstír.
Árið 2010 snéri Sigurður aftur til starfa á Grillinu og árið 2011 tók hann við sem yfir matreiðslumaður Grillsins.
Á undarfönum árum hefur Sigurður ferðast mikið til að skoða leiðandi veitingastaði og mótað þann matarstíl sem hann leggur upp með í matargerð sinni í dag. Hann hefur meðal annars heimsótt Capital Restaurant London, Foliage, Tom Aikens restaurant og La Noisette.
Árið 2004 – 2006 starfaði Sigurður með Íslenska kokkalandsliðinu, þar sem það vann til verðlauna á Ólympíuleikunum í Þýskalandi í Scot Hot í Glasgow og Basel í Swiss.
Official Social Media Bocuse d’Or